Oliver Sigurjónsson er þessa dagana við æfingar hjá Southend í ensku C-deildinni. Sol Campbell tók við Southend fyrr á tímabilinu og Hermann Hreiðarsson er honum til aðstoðar.
Oliver gekk til liðs við norska félagið Bodö/Glimt sumarið 2017 en hefur ekki náð að festa sig í sessi í liðinu þar.
Meiðsli hafa meðal annars verið að stríða Oliver en sumarið 2018 fór hann til Breiðabliks á láni.

Í sumar kom hinn 24 ára gamli Oliver við sögu í tveimur leikjum í norsku úrvalsdeildinni með Bodö/Glimt.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net getur Oliver yfirgefið Bodö/Glimt en hann skoðar nú næstu skref sín á ferlinum.
Athugasemdir