13.01.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Ljuboja til PSG (Staðfest)




Franska liðið Paris Saint-Germain hefur fengið sóknarmanninn Danijel Ljuboja frá Strasbourg lánaðan næsta hálfa árið. Þessi landsliðsmaður frá Serbíu og Svartfjallalandi skrifaði undir samning sem inniheldur þá klásúlu að leikmaðurinn getur gengið endanlega til liðs við PSG í júní.
Þessi 25 ára leikmaður kom til Frakklands 1998 og skrifaði undir hjá Sochaux Montbéliard áður en hann fór í Strasbourg tveimur árum síðar. Hann varð bikarmeistari með nýja liðinu 2001 og skoraði sjö mörk í deildinni það tímabil. PSG er í 2.sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliðinu AS Monaco.
