13.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Raul Molina aftur til Recreativo (Staðfest)




Spænska 2.deildarliðið Recreativo Huelva hefur fengið sóknarmanninn Raul Molina á láni út þessa leiktíð frá Espanyol. Hinn 27 ára Molina var einn besti ef ekki besti leikmaður Recreativo á seinustu leiktíð og skoraði alls tíu mörk í La Liga en það dugði ekki til og Recreativo féll. Molina fór þá til Espanyol síðastliðið sumar og samdi til fjögurra ára en hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá liðinu og er farinn aftur til Recreativo.
