Fotbolti.net
13.01.10 - 15:03
Magnús Már Einarsson

Gary Caldwell til Wigan (Staðfest)

Gary Caldwell til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur keypt varnarmanninn Gary Caldwell frá skoska félaginu Celtic.
Þessi 27 ára gamli leikmaður virtist vera á leið til Middlesbrough áður en Wigan gerði tilboð á síðustu stundu.

Caldwell ákvað að ganga frekar til liðs við Wigan og hann hefur núna skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið.

Caldwell er annar varnarmaðurinn sem Wigan fær í vikunni en í gær samdi Steven Gohouri við félagið.

Ekki veitir af fyrir Wigan að styrkja varnarleikinn því að liðið hefur fengið á sig haug af mörkum í vetur og meðal annars níu í einum leik gegn Tottenham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.