13.01.10 - 21:21
Magnús Már Einarsson
Maxi Rodriguez til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur fengið argentínska kantmanninn Maxi Rodriguez en hann kemur frítt til félagsins frá Atletico Madrid.
Þessi 29 ára gamli leikmaður er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við Liverpool.
Maxi, sem er góður vinur Javier Mascherano, skrifaði undir í dag og mætti síðan á leik Liverpool og Reading í kvöld.
,,Hann getur spilað hægra eða vinstra megin eða sem annar framherji,\" sagði Rafael Benitez stjóri Liverpool.
,,Hann er góður að komast inn á teiginn og hann er góður í að klára færin. Á hverju ári nær hann að skora fimmtán mörk af miðjunni.\"

Heimild: BBC