Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 13. febrúar 2020 06:00
Auglýsingar
Fyrsta stórmót sumarsins
Mynd: TM
TM mót Stjörnunnar fer fram á knattspyrnusvæði Stjörnunnar í Garðabæ 18. - 19. apríl og 25.- 26. apríl. Keppt er í 6. 7. og 8.flokki hjá strákum og stelpum. Árið 2019 mættu um 4000 glæsilegir þátttakendur á mótið og ljóst er að mótið er orðið eitt stærsta sinnar tegundar.

Spilaður er 5-manna bolti í öllum flokkum og er spiltími hvers liðs að lágmarki klukkutími.

Leikið verður á eftirfarandi dögum:

7.flokkur karla – 18.apríl
8.flokkur karla og kvenna – 19.apríl
6.flokkur karla – 25.apríl
6.- 7.flokkur kvenna – 26.apríl

Þátttökugjald er 2.750 krónur og fylgja vegleg þátttökuverðlaun, auk þess sem þátttakendur fá að spreyta sig á hinum ýmsum þrautum og fara í liðsmyndatöku.

Þjálfarar eru beðnir um að senda inn skráningu á [email protected] fyrir 15.mars.

Hlökkum til að taka á móti öllum þeim glæsilegum þátttakendum sem mæta og hafa gaman saman!
Athugasemdir
banner
banner