Nikola Dejan Djuric er kominn aftur í Hauka eftir að hafa leikið með Þrótti Vogum í fyrra.
Nikola gerði tveggja ára samning við Vogamenn í fyrra en fékk leyfi til að finna sér nýtt félag ári fyrir samningslok. Hann fer því til Hauka á lánssamningi.
Nikola kom við sögu í 18 leikjum er Þróttur endaði á botni Lengjudeildarinnar í fyrra en þar áður hafði hann spilað með KV og Haukum í 2. deildinni.
Nikola er fæddur 2001 og með fjóra leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Hann á 12 mörk í 39 leikjum á ferli sínum í 2. deild.
Athugasemdir