Fotbolti.net
13.05.12 - 08:00
Magnús Már Einarsson

Robin Strömberg í Þór (Staðfest)

Robin Strömberg í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Þórs

Þórsarar hafa fengið framherjann Robin Strömberg á láni frá Mjällby í sænsku úrvalsdeildinni.
Þórsarar hafa verið í leit að framherja í vetur en David Disztl, markahæsti leikmaður félagsins í fyrra, mun ekki leika áfram með liðinu.

Sú leit hefur nú skilað árangri en Strömberg gæti mögulega leikið sinn fyrsta leik með Þór í bikarnum á miðvikudag.

Strömberg er tvítugur en hann lék sex leiki með Mjällby í sænsku úrvalsdeildinni í fyrra.

Samkvæmt heimasíðu Mjällby er nautakjöt uppáhaldsmaturinn Strömberg og hans helsta afrek utan fótboltans er að hafa verið með þrettán rétta þegar hann tippaði á enska boltann.

Heimild: Heimasíða Þórs

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.