Aron Sigurðarson, leikmaður KR, var ekki valinn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Argentínu í vináttulandsleik snemma í næsta mánuði.
Aron hefur verið besti leikmaður Bestu deildarinnar og sögusagnir fóru á kreik um að hann yrði í landsliðshópnum. Þær reyndust hinsvegar ekki sannar.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður að því á fréttamannafundi hvort Aron hefði verið nálægt hópnum?

„Hann er búinn að vera frábær, leiða vagninn fyrir mjög skemmtilegt lið KR-inga. Við völdum hann í verkefnið gegn Mexíkó en hann komst því miður ekki í það," segir Arnar.
Ísland mætir Japan fyrst í vináttulandsleik áður en kemur að leiknum gegn Argentínu en enginn sem er að spila í Bestu deildinni var valinn í hópinn fyrir þann leik.
„Sama hversu vel hann er að spila í Bestu deildinni þá kemur maður að spurningunni hver á þá að detta út? Bein samkeppni við hann eru kannski Albert (Guðmundsson), Kristian Hlynsson og Kristall Máni (Ingason). Sumum finnst hann kannski hafa verið betri en þeir þrír, mér finnst það augljóslega ekki miðað við valið á hópnum gegn Argentínu."