Fotbolti.net
13.06.12 - 16:13
Elvar Geir Magnússon

Jussi Jaaskelainen í West Ham (Staðfest)

Jussi Jaaskelainen í West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Finnski markvörðurinn Jussi Jaaskelainen mun ganga í raðir West Ham þegar samningur hans við Bolton rennur út 1. júlí. Þetta hefur West Ham staðfest á heimasíðu sinni.

Jaaskelainen er 37 ára og hefur spilað 529 leiki fyrir Bolton en hann kom til félagsins 1997.
Bolton féll úr ensku úrvalsdeildinni á afstöðnu tímabili á meðan West Ham vann umspilsleik um sæti í efstu deild. Jaaskelainen mun því leika áfram í úrvalsdeildinni.

Hann sagði í viðtali á heimasíðu West Ham að hann væri spenntur fyrir þessari nýju áskorun en hann missti sæti sitt í marki Bolton til Adam Bogdan á síðasta tímabili.

Robert Green varði mark West Ham en hann er á leið til QPR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.