13.06.12 - 16:22
Magnús Már Einarsson
Di Matteo heldur áfram með Chelsea (Staðfest)

Roberto Di Matteo.

Mynd: Getty Images

Roberto Di Matteo.

Mynd: Getty Images
Roberto Di Matteo mun halda áfram sem knattspyrnustjóri Chelsea en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Di Matteo tók við Chelsea í byrjun mars eftir að Andre Villas-Boas fékk að taka pokann sinn.
Undir stjórn Di Matteo sigraði Chelsea síðan bæði Meistaradeildina og enska bikarinn.

Di Matteo, sem er 42 ára, lék með Chelesa á sínum tíma en hann var knattspyrnustjóri MK Dons og WBA áður en hann tók við sem aðstoðarmaður Villas-Boas síðastliðið sumar.
,,Við náðum ótrúlegum árangri á síðasta tímabili og komumst í sögubækurnar hjá þessu frábæra félagi,\" sagði Di Matteo sem mun bæði vera knattspyrnustjóri hjá Chelsea og þjálfari hjá aðalliðinu.
,,Markmið okkar er að halda áfram að byggja ofan á það og ég er þegar farinn að hlakka til að hitta hópinn á undirbúningstímabilinu.\"

Heimild: Heimasíða Chelsea