Fotbolti.net
13.08.04 - 19:44
Hafliði Breiðfjörð

Michael Owen til Real Madrid (Staðfest)

Owen í dag er hann mætti í læknisskoðun

Owen í dag er hann mætti í læknisskoðun

Canon
Michael Owen er orðinn leikmaður Real Madrid eftir að hafa undirgengist læknisskoðun hjá félaginu í dag. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið en samningurinn skilar Liverpool 8 milljónum punda og miðvallarleikmanninum Antonio Nunez. Fyrsta verk Owen sem leikmaður Real Madrid verður að fara til Englands þar sem hann spilar með landsliðinu gegn Úkraínu á miðvikudag.
Eftir komu Owen er ljóst að framlína Real Madrid er orðin ógnvænleg en liðið á nú þá Owen, Raul, Ronaldo og Fernando Morientes.

Liverpool hinsvegar er einum framherjanum færra en eftir standa Djibril Cisse, Milan Baros, Sinama Pongolle, Neil Mellor og El Hadji Diouf sem í gær fékk númer hjá félaginu eftir að númeri hans var úthlutað fyrr í sumar.

Owen sem er fæddur í desember 1979 og gerði fyrsta atvinnumannasamning sinn við Liverpool á 17 ára afmæli sínu 1996. Hann lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni árið 1997 er hann skoraði gegn Wimbledon og í kjölfarið sló hann í gegn. Hann var í heildina í 13 ár hjá Liverpool og skoraði á þeim tíma 158 mörk.

Owen verður tilkynntur opinberlega sem leikmaður Real Madrid á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.