Alvaro Montejo, sóknarmaður Þórs á Akureyri, er orðaður við KR.
Alvaro er 29 ára Spánverji og rennur samningur hans við Þórsara út í október. Öðrum félögum er því frjálst að ræða við hann og orðrómur í gangi um að hann muni ganga í raðir Íslandsmeistara KR eftir tímabilið.
Hann er á sínu þriðja tímabili hjá Þór þar sem hann hefur verið algjör lykilmaður. Hann hefur samtals skorað 31 mark í 47 leikjum í B-deild fyrir Akureyrarliðið.

Alvaro hefur einnig spilað fyrir ÍBV, Fylki og Huginn hér á landi.
Óðinn Svan Óðinsson, formaður Þórs, sagði við Fótbolta.net í dag að engin tilboð hefðu borist í leikmanninn í þessum glugga.
Athugasemdir