Fotbolti.net
13.08.26 - 22:30
Magnús Atlason

Maggi: Ég reyni að horfa sem minnst á stöðuna

Auglýsing
Maggi: Ég reyni að horfa sem minnst á stöðuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Fylkir og Afturelding skildu jöfn í hádramatískum leik í Árbæ. Fótbolti.net náði tali af Magnúsi Má Einarssyni eftir 6 marka jafnteflið.
"Þetta var skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur að horfa á, mikið action og mikið af færum og fram og til baka og það sem ég tek út úr þessu er bara trúin hjá okkur, lendum 1-0 undir, svöruðum, lendum 3-2, svöruðum. Trúin var alltaf til staðar hjá okkur"

Afturelding byrjaði seinni hálfleikinn töluvert betur en Fylkir skoraði tvö mörk með stuttu millibili þegar allt virtist undir stjórn. Hvað gerðist eiginlega?

"Ég veit það hreinlega ekki, þetta var mjög skrýtið, einhvernveginn sveiflaðist allt í einu. Við áttum að vera komnir í 3-1 fannst mér miðað við færin okkar þegar þeir jafna 2-2."

Fylkir skoraði rangstöðumark undir lok leiks. Hvað fannst Magga um það?

"Mér fannst það nú koma úr djúpinu, ég held að hann sé pottþétt rangstæður í þessu marki."

Afturelding er með eins stigs forskot á toppnum og á leik inni á næstu lið. Hvernig horfir það við honum?

"Ég reyni að horfa sem minnst á stöðuna einmitt af því að liðin eru ekki búin að spila jafn marga leiki og það skekkir myndina."


Sjá má viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.