Fotbolti.net
13.08.26 - 22:31
Kári Snorrason

„Hann er bara besti markvörður deildarinnar“

Auglýsing
„Besti markvörður deildarinnar, það er ekki spurning um það“

„Besti markvörður deildarinnar, það er ekki spurning um það“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
„Hann er bara besti markvörður deildarinnar, það er ekki spurning um það. Það er ómetanlegt fyrir okkur,“ segir Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Leiknis, um Ólaf Íshólm Ólafsson sem fór mikinn í marki liðsins í 2-1 tapi Leiknis gegn HK fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: HK 2 - 1 Leiknir R.
„Hann er nýbúinn að semja við okkur og við getum byggt ofan á það. Við erum í vinnu með að bæta hópinn og semja við kjarnan af leikmannahópnum. Við viljum halda áfram að byggja upp fyrir næstu ár.“

Fjórir leikir eftir hvernig leggst lokaspretturinn í þig?
„Hefðum við fengið jafntefli hefðum við verið meira inni í þessu myndi ég halda. Við stefnum á að klára mótið vel og sjáum hvar við erum eftir 22 leiki og tökum stöðuna þá.“

Þú ert frekar að horfa upp en niður þá?
„Já, það er í mínu eðli að gera það. Ég spái yfir höfuð lítið í töflunni. Við erum á þeim stað að við þurfum að hugsa um okkur sjálfa og að bæta okkur sem lið og fótboltamenn, sagði Brynjar að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Brynjar Björn Gunnarsson.

Brynjar Björn Gunnarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.