13.09.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Akinbiyi farinn í Stoke (Staðfest)
Stoke City gengu í morgun frá þriggja ára samningi við Ade Akinbiyi framherja Crystal Palace. Akinbiyi var á láni hjá Stoke á síðustu leiktíð og skoraði þá tvö mörk í fjórum leikjum en nú gengur hann til liðs við félagið á frjálsri sölu frá Palace. Akinbiyi lék með Leicester City í ensku úrvalsdeildinni fyrir tveimur árum en afraksturinn hjá honum þá var allt annað en góður. ,,Við erum hæstánægðir með að frá þessu hefur loksins verið gengið og að Ade er orðinn City leikmaður." sagði John Rudge talsmaður félagsins í dag. Akinbiyi gæti orðið í liðinu hjá Stoke sem mætir Sunderland á þriðjudag.
