Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 13. september 2019 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Mandzukic í viðræðum við Los Angeles
Mynd: Getty Images
Króatíski framherjinn Mario Mandzukic er á förum frá Juventus. Hann vildi ekki yfirgefa félagið en Maurizio Sarri, sem tók við í sumar, hefur ekki not fyrir hann.

Það eru mörg félög sem hafa áhuga á Mandzukic og hafa bestu tilboðin borist frá Los Angeles FC í Bandaríkjunum og Al-Gharafa í Katar.

Ítalskir fjölmiðlar segja Mandzukic ekki hafa neinn áhuga á því að flytja til Katar. Hann vill miklu heldur flytja til Bandaríkjanna og er í viðræðum við Los Angeles.

Mandzukic er 33 ára gamall og hefur verið hjá Juventus síðustu fjögur ár. Hann lék áður fyrir Dinamo Zagreb, Wolfsburg, FC Bayern og Atletico Madrid.

Hann hefur gert 33 mörk í 89 landsleikjum og 44 í 162 leikjum fyrir Juventus.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner