banner
   mið 13. október 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Thiago Silva sendir Neymar stuðningskveðjur
Thiago Silva og Neymar eru góðir félagar
Thiago Silva og Neymar eru góðir félagar
Mynd: EPA
Thiago Silva, samherji Neymars í brasilíska landsliðinu, hefur sent honum stuðningskveðjur, en sóknarmaðurinn opnaði sig nýlega um andlegt álag á að spila fyrir Brasilíu.

Neymar opnaði sig á dögunumí nýrri heimildarmynd sem erum kappann en þar greinir hann frá því að hann ætli sér að spila á HM í Katar og hætta svo með landsliðinu vegna andlegs álags.

Thiago Silva, sem leikur með Chelsea, spilaði með Neymar hjá Paris Saint-Germain og þá eru þeir liðsfélagar í brasilíska landsliðinu, en hann sendir honum stuðningskveðjur og segist skilja hann vel.

„Ég hef farið í gegnum svipuð augnablik með landsliðinu, sérstaklega eftir HM 2014. Ég var kallaður grenjuskjóða og að ég væri mjög andlega veikur. Þetta særir mann þó maður viti að þetta sé ekki satt," sagði Silva.

„Ég vona að hann missi ekki leikgleðina og haldi áfram að vera ánægður eins og hann er alltaf. Hann er sérstakur strákur og þegar hann er ánægður, að gera það sem hann elskar, þá skilar hann alltaf sínu."

Silva sendi honum þá kveðju á Instgram þar sem hann veitti honum meiri stuðning.

„Ef þú þarft einhvern sterkan þér við hlið, þá veistu að ég verð alltaf til staðar. Silva-fjölskyldan elskar þig," sagði Silva á Instagram.
Athugasemdir
banner
banner
banner