Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 13. nóvember 2019 12:30
Fótbolti.net
Treyjuuppboð Gunnleifs - Allt til styrktar góðu málefni
Treyja Vedran Corluka.
Treyja Vedran Corluka.
Mynd: Gunnleifur Gunnleifsson
Á næstu vikum verður haldið uppboð á treyjum úr safni Gunnleifs Gunnleifssonar, markvarðar Breiðabliks.

Allur ágóði af sölunni rennur til Píeta samtakana á Íslandi.

Treyjurnar koma víðsvegar að. Skiptitreyjur eftir leiki og gjafatreyjur frá vinum og félögum.

Landslið og félagslið, þekkt og óþekkt nöfn, frá Íran til Frakklands, Waregem til Man City, og margar fleiri.

Fótbolti.net mun í þessari viku bjóða upp þrjár treyjur en þær seljast allar í sitthvoru lagi. Fleiri treyjur verða á uppboði á næstunni.

Einnig verða treyjur sem ekki fara á uppboð á Fótbolti.net, til sölu á slá í Jóa Útherja.

Treyjurnar á uppboðinu verða til sýnis á SportogGrill í Smáralind.

Treyjurnar sem Fótbolti.net býður upp eru
Treyja Vedran Corluka úr Króatía - Ísland
Treyja sem Aron Einar Gunnarsson spilaði með Coventry
Treyja Craig Gordon úr landsleik Skotlands og Íslands.

Bjóddu í treyju með því að senda á [email protected]

Lágmarksboð er 15 þúsund krónur.

Uppboðið stendur yfir til 12:00 föstudaginn 15. nóvember.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner