Fotbolti.net
13.11.26 - 10:00
Kári Snorrason

Garðar ræðir tímann í Búlgaríu - „Þarf ekki tíu ára gamlar upplýsingar frá mér“

Garðar Gunnlaugsson þekkir vel til í Búlgaríu.

Garðar Gunnlaugsson þekkir vel til í Búlgaríu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Íslenska landsliðið mætir Búlgaríu ytra á Hristo Botev leikvanginum í Plovdiv annað kvöld í næst síðasta leik liðsins í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Ísland er á toppi riðilsins með átta stig, tveimur stigum meira en Eistland. Ísland mætir Lúxemborg á mánudaginn í lokaleik riðilsins.

Til þess að hita upp fyrir leik morgundagsins sló Fótbolti.net á þráðinn til Garðars Gunnlaugssonar, en hann lék um skeið í Búlgaríu og er bróðir Arnars Gunnlaugssonar landsliðsþjálfari.
Arnar ræddi við bróður sinn um Búlgaríu: Sagði nokkrar góðar sögur
TENGT EFNI

Arnar ræddi við bróður sinn um Búlgaríu: Sagði nokkrar góðar sögur

Spáir 3-0 sigri
Fyrri leiknum lauk með sannfærandi 3-0 sigri Íslands á Laugardalsvelli og er Garðar bjartsýnn fyrir leik morgundagsins.

„Mér líst bara mjög vel á leikinn, sérstaklega ef maður horfir á hvernig fyrri leikurinn spilaðist. Ísland var náttúrulega með mikla yfirburði í þeim leik. Mér líst mjög vel á þennan leik á morgun. Menn eru að koma mjög heitir inn í þessum glugga, það sakar ekki,“ segir Garðar og spáir hann 3-0 sigri Íslands. „Orri og Andri setja sitthvort markið, ætli Ísak komi ekki með eina neglu líka.“

Kærði CSKA vegna vangreiddra launa
Eins og áður sagði lék Garðar með CSKA Sofiu og lýsir hann tímunum þar sem skrautlegum. „Ég var á þriggja ára samningi þarna en þetta voru nokkrir mánuðir sem ég spilaði. Síðan kærði ég félagið eftir um hálft ár út af vangoldnum launum. Þannig það samband endaði fljótt,“ segir Garðar.

Í frétt Fótbolta.net frá þessum tíma var fjallað um að Garðar hafi ekki fengið greidd laun í fjóra mánuði.



Frá B-deild í það að mæta Real Madrid á þremur árum
Fótboltinn í Búlgaríu á þessum tíma var þá nokkuð frumstæður?

„Já, til dæmis þegar ég var að fara þá kaupir núverandi eigandi Ludogorets félagið. Þeir voru þá í næst efstu deild og tekur í rauninni alla bestu leikmenn úr efstu deildinni og borgar þeim himinhá laun.

Þeir fara upp úr næst efstu deild, vinna efstu deild árið eftir og Real Madrid mætt í heimsókn tveimur árum seinna,“
segir Garðar.

Leikur Ludogorets gegn Real Madrid í Meistaradeildinni 2014 endaði með 1-2 sigri Real í Búlgaríu en spænska liðið vann 4-0 sigur á Búlgörunum á Bernabeu.

Mætti stuttu eftir fall kommúnismans
Aðspurður um lífið utan vallar segir Garðar það hafa verið æðislegt. „Það er auðvitað frábært veður þarna stóran hluta ársins. Maturinn, menningin og fólkið allt mjög flott. Verðlagið sakar ekki heldur, Sofia er ein ódýrasta höfuðborg Evrópu. Það er hægt að lífa fínasta lífi þarna ef maður er með ágætis tekjur,“ segir Garðar og heldur áfram.

„Þetta var mjög skrautlegt. Ég er þarna ekkert mjög lengi eftir að kommúnisminn fellur í Búlgaríu. Þjóðin var í ákveðnum uppbyggingarfasa þegar ég er þarna og maður sér örar breytingar á þessum árum sem maður var með annan fótinn þarna. Ég hef ekki farið þarna í einhver tíu ár en maður getur ímyndað sér að þetta hefur tekið miklum breytingum.“

Ertu búinn að lauma einhverjum molum um Búlgaríu til bróður þíns?

„Nei, ég held að hann sé með það gott teymi á bakvið sig að hann þurfi ekki einhverjar tíu ára gamlar upplýsingar frá mér,“ sagði Garðar léttur og hló að lokum.
Ísland vann 3-0 sigur á Búlgaríu í síðasta verkefni.

Ísland vann 3-0 sigur á Búlgaríu í síðasta verkefni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fékk ekki borgað í fjóra mánuði.

Fékk ekki borgað í fjóra mánuði.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Ludogorets mætti Real Madrid í Meistaradeildinni 2014, þremur árum eftir að vera í B-deild.

Ludogorets mætti Real Madrid í Meistaradeildinni 2014, þremur árum eftir að vera í B-deild.

Canon

Mynd: EPA

„Ég held að hann sé með það gott teymi á bakvið sig að hann þurfi ekki einhverjar tíu ára gamlar upplýsingar frá mér.“

„Ég held að hann sé með það gott teymi á bakvið sig að hann þurfi ekki einhverjar tíu ára gamlar upplýsingar frá mér.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.