Fotbolti.net
13.11.26 - 10:08
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá Plovdiv

Leikmaður Leeds tjáir sig um leikinn gegn Íslandi

Ilia Gruev, leikmaður Leeds.

Ilia Gruev, leikmaður Leeds.

Canon

Mynd: EPA

Eimskip
Það er ekki hægt að segja að búlgarska landsliðið sem leikur gegn Íslandi í kvöld sé stjörnum prýtt. Innanborðs má þó finna leikmann sem spilar í ensku úrvalsdeildinni.

Það er miðjumaðurinn Ilia Gruev, leikmaður Leeds United. Hann spilaði sinn fyrsta úrvalsdeildarleik á tímabilinu þegar hann kom inn sem varamaður í blálokin gegn Tottenham síðasta laugardag.
Ribarski hefur opinberað hópinn sem tekur á móti Íslandi
TENGT EFNI

Ribarski hefur opinberað hópinn sem tekur á móti Íslandi

„Mér líður vel, ég er að komast í takt, ég er ánægður með að vera með landsliðinu og mér líður betur. Ég vonast til að fá fleiri og fleiri mínútur,“ sagði Gruev á fréttamannafundi í gær.

„Mér fannst við byrja leikinn vel í Reykjavík; við fengum tækifæri til að skora. Ef við hefðum skorað fyrsta markið hefði leikurinn getað þróast okkur í vil. Ef við gerum ekki grunnmistök og nýtum færin okkar, þá eigum við möguleika á að sigra þá,“ bætti Gruev við.

Búlgaría og Ísland mætast í C-deild Þjóðadeildarinnar klukkan 19.45 í kvöld, 21:45 að staðartíma. Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum í kvöld.
Atanas Ribarski.

Atanas Ribarski.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.