Heimild: Íslendingavaktin
Guðlaugur Victor Pálsson er mikilvægur hlekkur í liði Darmstadt sem leikur í þýsku B-deildinni.
Hann fékk beint rautt spjald í síðasta leik liðsins sem var gegn Wehen og lauk með markalausu jafntefli. Guðlaugur fékk upprunalega aðeins gult spjald en VAR herbergið lét reka hann útaf.
Þýska knattspyrnusambandið hefur dæmt Guðlaug í tveggja leikja bann fyrir ljótt brot og er honum gert að greiða 2000 evrur í sekt, sem samsvara tæpum 300 þúsund krónum.
Tæklingu Guðlaugs Victors má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir