14.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
James til Manchester City (Staðfest)




David James hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Manchester City og kemur hann frá West Ham á tvær milljónir punda. Hinn 33 ára enski landsliðsmarkvörður er ætlað að fylla skarð David Seaman sem tilkynnti í gærkvöldi að hann væri hættur knattspyrnuiðkun. James var í skýjunum yfir því að komast aftur í ensku úrvalsdeildinni en játaði að það hefði verið erfitt að yfirgefa West Ham. Hann bætti við að hann þekkti nokkra leikmenn hjá City frá sínum tíma hjá Liverpool og West Ham og að hann hefði einnig unnið með Kevin Keegan hjá enska landsliðinu svo að hann myndi falla vel inn í hópinn.
