14.01.10 - 07:10
Hafliði Breiðfjörð
Ellen Bjarnadóttir til KR (Staðfest)

Ellen Bjarnadóttir er komin í KR.

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

KR heldur áfram að styrkja kvennalið sitt fyrir næstu leiktíð og í vikunni gekk Ellen Bjarnadóttir til liðs við félagið frá HK/Víkingi.
Hún hefur allan sinn feril leikið með HK/Víkingi þar sem hún á að baki 132 deildarleiki sem hún hefur skorað níu mörk í.
Hún lék 11 leiki með HK/Víking í 1. deildinni í sumar auk eins bikarleiks. Liðið náði ekki að endurheimta sæti sitt í efstu deild í sumar og hefur verið að missa sína bestu leikmenn í kjölfar þess.
Ellen er ein þriggja systra sem hafa leikið saman með HK/Víkingi undanfarin ár. Rut og Berglind systur hennar voru lánaðar til KR fyrstu leiki síðasta sumars.
Eftir að tímabilinu lauk gekk Berglind í raðir Vals en Rut hefur æft með KR í vetur.
KR hafði áður fengið Hörpu Þorsteinsdóttur frá Völsungi, Margréti Þórólfsdóttur frá Aftureldingu og Elísabetu Ester Sævarsdóttur frá Keflavík frá því tímabilinu lauk.
Þá ákvað Sonja Björk Jóhannsdóttir að ganga til liðs við félagið en hún var á láni frá Hetti hjá KR síðasta sumar.

Heimild: Vefur KR