Fotbolti.net
14.01.10 - 09:27
Magnús Már Einarsson

Lucas Neill til Galatasaray (Staðfest)

Lucas Neill til Galatasaray (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Galatasaray hefur keypt varnarmanninn Lucas Neill frá Everton.
Talið er að Galatasaray hafi borgað um 800 þúsund pund fyrir Neill sem skrifaði undir eins og hálfs árs samning við félagið.

Neill kom til Everton frá West Ham í september en hann skrifaði þá undir eins árs samning við félagið.

Neill hefur alls leikið fimmtán leiki með Everton á tímabilinu en hann kom ekki við sögu í Evrópudeildinni þar sem að ekki náðist að skrá hann í leikmannahópinn þar í tæka tíð.

Því gæti Galatasaray notað Neill í Evrópudeildinni eftir áramót en Tyrkirnir mæta Atletico Madrid í 32-liða úrslitum.

Neill er ástralskur landsliðsmaður hjá Galatasaray hittir hann fyrir landa sinn Harry Kewell.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.