Fotbolti.net
14.01.10 - 11:25
Hafliði Breiðfjörð

Jiri Jarosik til Real Zaragoza (Staðfest)

Jiri Jarosik.

Jiri Jarosik.

Canon

Mynd: Getty Images

Tékkneski miðjumaðurinn Jiri Jarosik er genginn í raðir spænska 1. deildarliðsins Real Zaragoza.
Umboðsmaður hans, Jiri Rosicky, sagði í dag að leikmaðurinn sem er 32 ára gamall hafi skrifað undir samning sem gildir út tímabilið 2010-2011.

Hann kemur til félagsins f´ra Krylya Sovetov Samara í Rússlandi en samningur hans var að renna út þar.

Hann hafði áður leikið með Chelsea og Birmingham í ensku úrvalsdelidinni auk Celtic í Skotlandi.

Hann á að baki 23 landsleiki fyrir Tékkland. Hann hafði komið frá CSKA Moskvu til Chelsea í janúar 2004 en kaupverðið þá var 8 milljónir evra. Árið 2003 var hann í liði CSKA sem vann titlinn heima fyrir í fyrsta sinn í 12 ár.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.