Fotbolti.net
14.01.10 - 14:06
Magnús Már Einarsson

Heimir Snær Guðmundsson til ÍR (Staðfest)

Heimir Snær Guðmundsson til ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið Heimi Snæ Guðmundsson til liðs við sig frá Fjölni en þetta staðfesti Guðlaugur Baldursson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í dag.
Heimir hefur æft með ÍR í vetur og nú er ljóst að hann mun ganga til liðs við félagið. Hann verður þó ekki með gegn KR í fyrsta leik í Reykjavíkurmótinu í kvöld þar sem að félagaskiptin gengu ekki í gegn í tæka tíð.

Heimir hefur leikið með Fjölni undanfarin þrjú ár en hann var fyrst í láni hjá félaginu frá FH.

Þessi 25 ára gamli varnar og miðjumaður er uppalinn hjá FH en hann lék einnig með ÍBV sumarið 2005.

Síðastliðið sumar lék Heimir einungis sjö leiki í Pepsi-deildinni með Grafarvogsliðinu en meiðsli settu strik í reikninginn.

Guðjón Gunnarsson, miðjumaður úr Breiðablik, er einnig að æfa með ÍR en ekki er ljóst hvort að hann muni semja við félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.