Fotbolti.net
14.01.20 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

Inter og Roma skipta á leikmönnum - Ekki pláss fyrir Young

Inter og Roma skipta á leikmönnum - Ekki pláss fyrir Young
Canon

Mynd: Getty Images

Sky á Ítalíu hefur öruggar heimildir fyrir því að Inter og Roma munu skipta á leikmönnum á morgun og því sé ekkert pláss fyrir Ashley Young í leikmannahópi Inter.
Mikið hefur verið rætt um framtíð Young að undanförnu þar sem hann er talinn hafa hafnað samningstilboði frá Manchester United fyrr í janúar til að ganga til liðs við Inter.

Inter vantar bakvörð á meðan Roma vantar framherja og eru félögin að skipta á nokkuð heitum bitum sem hafa báðir fengið lítinn spiltíma á leiktíðinni.

Matteo Politano og Leonardo Spinazzola eru báðir 26 ára gamlir og metnir á rétt tæplega 30 milljónir evra.

Politano, leikmaður Inter, þykir öflugur og fjölhæfur framherji á meðan Spinazzola, leikmaður Roma, þykir öflugur og fjölhæfur bakvörður. Spinazzola á leiki að baki fyrir Atalanta og Juventus.

Báðir eiga þeir A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu og hafa sýnt gæði sín í Serie A.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.