14.05.04 - 00:00
Jón Stefán Jónsson
Robinson til Tottenham (staðfest)

Paul Robinson


Paul Robinson

Paul Robinson skrifaði í morgun undir 4 ára samning við Tottenham. Hann sagði við það tilefni að honum hlakkaði til að prófa eitthvað nýtt í boltanum, en jafnframt að það hefði verið erfitt að fara frá Leeds eftir 10 ára veru þar. Robinson sagði jafnframt að það hefði verið alveg ljóst að hann hefði þurft að fara eftir að Leeds féll, bæði vegna síns eigin frama, og einnig vegna þess að stjórnin hafi tilkynnt að liðið þyrfti að selja leikmenn.
