Fotbolti.net
14.05.12 - 10:03
Magnús Már Einarsson

Danny Thomas í FH (Staðfest)

Danny Thomas í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

FH-ingar hafa samið við Danny Thomas sem hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga.

Þetta kemur fram á Fhingar.net en þessi 31 árs gamli Englendingur hefur skrifað undir samning út tímabilið.
Thomas verður ekki með FH gegn Selfyssingum í kvöld en hann gæti leikið sinn fyrsta leik gegn Breiðabliki næstkomandi sunnudag.

Um er að ræða vinstri fótar leikmann sem bæði getur spilað sem bakvörður og sem vængmaður.

Á sínum ferli hefur hann leikið með Leicester, Hereford, Macclesfield og Tamworth svo eitthvað sé nefnt.

Síðast var hann hjá Tamworth en meðfylgjandi mynd er af Thomas í bikarleik með liðinu gegn Everton.

Heimild: Fhingar.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.