Fotbolti.net
14.05.12 - 14:32
Magnús Már Einarsson

Alex McLeish rekinn frá Aston Villa (Staðfest)

Alex McLeish rekinn frá Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur ákveðið að reka knattspyrnustjórann Alex McLeish úr starfi en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.

McLeish tók við Aston Villa síðastliðið sumar eftir að hafa yfirgefið nágrannana í Birmingham.
McLeish náði aldrei að vinna stuðningsmenn Villa á sitt band en gengi liðsins var langt fyrir neðan væntingar í vetur.

Undir lok tímabilsins var gengi Aston Villa sérstaklega slæmt en á endanum var liðið einungis tveimur stigum frá falli.

Aston Villa vann einnig einungis fjóra heimaleiki á tímabilinu en það er versti árangur í sögu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.