14.05.12 - 16:00
Snorri Helgason
Twitter dagsins - Hvaða bull er þetta?

Vincent Kompany fyrirliði Manchester City í sigurvímu í gærkvöldi ásamt tónlistarmanninum Liam Gallagher og boxaranum Ricky Hatton.

Mynd: Twitter

Vincent Kompany fyrirliði Manchester City í sigurvímu í gærkvöldi ásamt tónlistarmanninum Liam Gallagher og boxaranum Ricky Hatton.

Mynd: Twitter
Frestanir á leikjum í Pepsi-deildinni og lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni eru efst á baugi í Twitter pakka dagsins.
Henry Birgir Gunnarsson íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og Vísi:
Þessar frestanir í kvöld eru Cocoa Puffs-frestanir. Við búum á Íslandi. Kúdos á Kef. #ToughenUp
Kristinn Steindórsson leikmaður Halmstad:
Pepsi League eða Pussy League #frestun #frestanir
Hans Steinar Bjarnason íþróttafréttamaður á RÚV:
Reykjavík kl 19 í kvöld, 9metrar og +2°. Keflavík, 12 metrar og +2°. #pepsifrestun
Sigmar Ingi Sigurðarson leikmaður Breiðabliks:
Hvaða bull er þetta? Ef það er hægt að spila í Keflavík þá er hægt að spila í Kópavogi!!!!!
Orri Eiríksson fótboltaáhuagmaður:
Hólmar Örn Eyjólfsson hefur spilað 35 unglingalandsleiki og 34 leiki með félagsliðum #merkilegt #eðafáránlegt
Gísli Páll Helgason leikmaður Breiðabliks:
Guðmann: \"Djöfull ætla ég að strauja Ingó Idol í kvöld maður.\" Ég: \"Afhverju?\" Guðmann: \"Æji við erum kviðmágar\" #sérstakur #harður
Jóhann B Guðmundsson leikmaður Keflavíkur:
Mætingabolurinn í ár. Heiðrum Ragga Margeirs, einn allra besti leikmaður Keflavíkur í gegnum tíðina. @Keflvikingur Sjá tengil
Hallbera Gísladóttir leikmaður Pitea:
Skemmtileg þessi ferðalög á leikdegi. Lagt af stað 06:00 komin upp í rúm 23:47.
Guðmundur Kristjánsson leikmaður Start:
Loksins fá poolarar að fagna - United missti af titlinum. Mjög eðlilegt
Ólafur Már Þórisson íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu:
Félög eiga að útiloka JBarton frá fótbolta. Ömurlegt fyrir æskuna að horfa á svona. Þetta er liðsíþrótt, allir komast af án hans #fotbolti
Daníel Geir Moritz fyndnasti maður Íslands:
Nennir einhver að gera svona síðu eins og erfostudagur.is fyrir erjoeybartonibanni.is ? #fótbolti
Magnús Már Einarsson ritstjóri Fótbolta.net:
Fótbolti er móðir og faðir allra íþrótta (Staðfest)
Joseph Barton leikmaður QPR:
Nóg komið að gærdeginum, ég bið alla sem ég móðgaði afsökunar. Ef það er ekki nóg fyrir einhverja þá verður það að hafa það. Lífið er of stutt.
Wayne Rooney leikmaður Manchester United:
Stuðningsmenn okkar voru frábærir í dag. Takk fyrir stuðninginn allt tímabilið. Við verðum að horfa fram á við á næsta tímabil.
Mario Balotelli leikmaður Manchester City:
Ég mun ekki missa bikarinn í jörðina! #CHAMPIONS
Youtube-myndband dagsins: Hjátrúarfullir stuðningsmenn Galatasaray mættu ekki á úrslitaleik gegn Fenerbahce um tyrkneska meistaratitilinn heldur keyrðu um göturnar og hlustuðu á útvarpið.
