14.05.12 - 19:56
Magnús Már Einarsson
Paul Scholes tekur eitt tímabil í viðbót með Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest að Paul Scholes muni leika áfram með liðinu á næsta tímabili.
Scholes lagði skóna á hilluna fyrir ári síðan en ákvað síðan í byrjun janúar að byrja að leika með Manchester United á nýjan leik.

Þessi 37 ára gamli leikmaður átti góða leiki með United á síðari hluta tímabilsins og nú er ljóst að hann mun leika áfram með liðinu næsta vetur.
Scholes lék sinn fyrsta leik með Manchester United árið 1993 en hann hefur unnið fjölmarga titla með liðinu.
Samtals hefur Scholes leikið hátt í 500 leiki í ensku úrvalsdeildinni og skorað í þeim yfir 100 mörk.