Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 14. maí 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lið 2. umferðar: Fjórar úr ÍBV
Auður Scheving
Auður Scheving
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóley María
Sóley María
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg Lúcía
Ingibjörg Lúcía
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
2. umferð Pepsi Max-deildar kvenna er ekki lokið en einum leik var frestað í umferðinni. Það stöðvar okkur ekki í því að velja úrvalslið umferðarinnar.

ÍBV vann öflugan 4-2 heimasigur gegn Breiðabliki á mánudag. Andri Ólafsson er þjálfari umferðarinnar og fjórir leikmenn í hans liði eru í liðinu.



Delaney Baie Pridham (DB) skoraði tvö mörk í leiknum og slíkt hið sama gerði Viktorija Zaicikova. Markvörður liðsins, Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving átti frábæran leik í markinu og Liana Hinds var öflug í vörninni.

Selfoss vann 0-2 útisigur í Boganum á Akureyri gegn Þór/KA. Brenna Lovera skoraði fyrra mark Selfoss í leiknum og var öflug. Markið kom eftir stungusendingu frá Hólmfríði Magnúsdóttur sem var næstbesti leikmaður vallarins.

Best á vellinum var Emma Kay Checker sem batt vörn Selfoss saman og stýrði leikmönnum í kringum sig. Hólmfríður og Brenna eru í annað sinn í liði umferðarinnar.

Þróttur gerði markalaust jafntefli við Val og eru tveir Þróttarar í liðinu. Sóley María Steinarsdóttir var öflug í miðverðinum og Shea Moyer var góð á miðjunni.

Stjarnan og Keflavík gerðu einnig markalaust jafntefli og er Celine Rumpf varnarmaður Keflavíkur í liðinu og Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir miðjumaður Stjörnunnar á miðjunni.

Fyrri lið umferðarinnar:
1. umferð
Athugasemdir
banner
banner
banner