Fotbolti.net
14.06.04 - 16:05
Magnús Már Einarsson

Aranzabal til Zaragoza (Staðfest)

Agustín Aranzabal.

Agustín Aranzabal.

Canon
Real Zaragoza hefur keypt Agustín Aranzabal frá Real Sociedad á eina milljón evra eða 664 þúsund pund. Aranzabal sem að er 31 árs vinstri bakvörður hefur leikið seinustu tólf ár með Sociedad og var meðal annars fyrirliði liðsins þegar að það náði öðru sætinu í fyrra en á nýliðnu tímabili gekk ekki alveg eins vel.
Aranzabal lék alls 323 deildarleiki með Sociedad og skoraði í þeim fimm mörk og þá á hann 28 landsleiki að baki með Spánverjum og hefur meðal annars leikið á tveimur heimsmeistarakeppnum og tveimur Evrópumönnum.

Zaragoza sem að endaði í tólfta sæti La Liga keypti Aranzabal fyrir nokkrum vikum en þetta var gert opinbert í dag. Aranzabal skrifaði undir tveggja ára samning við Zaragoza með möguleika á framlengingu um eitt ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.