Fotbolti.net
14.06.04 - 16:24
Elvar Geir Magnússon

Joachim til Leeds (Staðfest)

Julian Joachim.

Julian Joachim.

Canon
Sóknarmaðurinn Julian Joachim er kominn til Leeds United á frjálsri sölu frá Coventry eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá liðinu. Hann mun opinberlega verða leikmaður Leeds þann 1.júlí. Joachim er aðdáendum enska boltans að góðu kunnur en þessi 29 ára leikmaður lék með Aston Villa og Leicester.
Leeds þurfti að styrkja sig sóknarlega eftir að hafa misst Alan Smith og þá er Mark Viduka líklega einnig á förum. Joachim skoraði 11 mörk fyrir Coventry seinasta leiktímabil og átti stóran þátt í velgengni liðsins í 1.deildinni. Hann lék sérstaklega vel á lokasprettinum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.