14.06.12 - 07:15
Brynjar Ingi Erluson
Harry Redknapp farinn frá Tottenham (Staðfest)

Harry Redknapp er hættur hjá Tottenham

Mynd: Getty Images

Harry Redknapp er hættur hjá Tottenham

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur, hefur staðfest að Harry Redknapp, stjóri liðsins, hafi verið látinn taka poka sinn.
Redknapp, sem er 65 ára gamall átti fund með Daniel Levy, formanni félagsins um hádegi í gær, en þeir áttu í viðræðum með framlengingu á samning Redknapp.
Þeir komust ekki að samkomulagi og hefur því Redknapp yfirgefið félagið eftir þriggja og hálfs árs dvöl, þar sem hann kom meðal annars Tottenham í Meistaradeild Evrópu og alla leið í 8-liða úrslit keppninnar.
Tottenham hefur gefið frá sér yfirlýsingu sem kom á heimasíðu félagsins í nótt, en hún hljóðar svo.
,,Þetta var ekki auðveld ákvörðun fyrir stjórnina. Harry kom til félagsins með þá reynslu og nálgun sem félagið þurfti. Þessi ákvörðun skyggir ekki á þann frábæra árangur sem Harry hefur náð hjá klúbbnum og vil ég þakka honum fyrir þau afrek og hans framlag, Harry verður alltaf velkominn á völlinn\" sagði í yfirlýsingunni sem Daniel Levy gaf frá sér.
Redknapp sagði þá nokkur lokaorð fyrir stuðningsmenn félagsins.
,,Ég hef notið þess gríðarlega mikið að vera hjá Tottenham og er stoltur af afrekum mínum þar. Ég hef átt fjögur frábær ár hérna þar sem fótboltinn var á köflum ótrúlegur. Ég er leiður yfir því að fara frá félaginu, en ég vil samt sem áður þakka öllum leikmönnunum, þjálfaraliðinu og stuðningsmönnunum fyrir frábæran stuðning á tíma mínum hér,\" sagði hann.

Heimild: Heimasíða Tottenham