Lionel Messi kom Argentínu yfir gegn Síle í Suður-Ameríku bikarnum á 33. mínútu með frábæru aukaspyrnumarki í kvöld.
Messi hefur alltaf þráð að vinna stóran titil með Argentínu en hann á ekki mörg tækifæri eftir.
Argentína byrjar að minnsta kosti vel í Suður-Ameríku bikarnum en Messi var rétt í þessu að skora fyrsta mark leiksins gegn Síle.
Liðið fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig og var auðvitað Messi fyrstur að boltanum. Hann lét vaða í hægra hornið og söng boltinn í netinu en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Staðan er 1-1. Eduardo Vargas jafnaði metin fyrir Síle fyrir örfáum mínum síðan.
Markið hjá Messi
Athugasemdir