14.07.04 - 12:54
Magnús Már Einarsson
WBA fær pólskan landsliðsmann (Staðfest)




WBA hefur fengið pólska markvörðinn Tomasz Kuszczak frítt frá Herthu Berlin. Hinn 22 ára gamli Kuszczak skrifaði undir þriggjá ára samning við WBA en hann mun berjast um markvarðarstöðuna við Russell Hoult, Joe Murphy og Simon Miotto hjá WBA.
Kuszczak á tvo landsleiki að baki fyrir A-landslið Pólverja en hann er fjórði leikmaðurinn sem að kemur til WBA í sumar.
