14.07.04 - 13:59
Magnús Már Einarsson
Manuel Almunia til Arsenal (Staðfest)




Arsenal hefur keypt markvörðinn Manuel Almunia fyrir óuppgefna upphæð frá Celta Vigo. Hinn 27 ára gamli Almunia sem að var í láni hjá Albacete á síðustu leiktíð á að berjast um markvarðarstöðu Arsenal við hinn þýska Jens Lehmann. Arsenal hefur leyst markvörðinn Rami Shaaban undan samningi og lánað Graham Stack til Millwall og þá hefur Stuart Taylor átt við meiðsli að stríða og því ákvað liðið að kaupa Almunia.
