Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 14. september 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Leikmenn Newcastle vildu treyju Ronaldo
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo skoraði tvö í góðum sigri Manchester United gegn Newcastle á Old Trafford um helgina.

Rauðu djöflarnir unnu leikinn 4-1 og eru meðal fjögurra toppliða ensku úrvalsdeildarinnar með 10 stig eftir fjórar umferðir.

Eftir að flautað var til leiksloka tókust menn í hendur og nýttu leikmenn Newcastle tækifærið til að biðja Ronaldo um treyjuna.

Ronaldo samþykkti fyrstu beiðnina og þurfti að hafna tveimur öðrum leikmönnum Newcastle á næstu fimmtán sekúndum.

Það er ljóst að leikmenn bera gífurlega mikla virðingu fyrir Ronaldo sem er goðsögn í knattspyrnuheiminum, enda þekktur sem einn af bestu leikmönnum allra tíma.


Athugasemdir
banner
banner
banner