Ivelin Popov, fyrirliði búlgarska landsliðsins, fékk það hlutverk að ræða við búlgörsku stuðningsmennina í hálfleik en leikurinn hefur verið stöðvaður í tvívang vegna kynþáttaníðs.
Stuðningsmennirnir hafa tvívegis fengið viðvörun í leik Búlgaríu og Englands en Tyrone Mings kvartaði við Harry Kane, fyrirliða Englands, vegna kynþáttaníðs.
Það var svo tilkynnt í kallkerfinu að ef þetta myndi halda svona áfram þá yrði leikurinn stöðvaður og spilaður síðar.
Þrátt fyrir þessar viðvaranir þá hafa stuðningsmennirnir haldið áfram og hafa meðal annars boðið upp á nasistakveðjur.
Popov ákvað því að ræða við stuðningsmennina í hálfleik en það verður fylgst með framvindu mála hér á Fótbolta.net.
Bulgaria captain Ivelin Popov has been pleading with the home fans at half-time to stop the racist chanting. pic.twitter.com/bH77WOzKnY
— SPORTbible (@sportbible) October 14, 2019
Athugasemdir