Fotbolti.net
14.12.19 - 23:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Mörkin úr leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni

Mo Salah skoraði bæði mörk Liverpool í 2-0 sigri á Watford.

Mo Salah skoraði bæði mörk Liverpool í 2-0 sigri á Watford.

Canon

Mynd: Getty Images

Það vantaði að sjálfsögðu ekki fjörið í leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni, sex leikir fóru fram í dag.
VAR hélt áfram að leika stórt hlutverk, sérstaklega mikil umræða hefur verið um mark Sadio Mane sem dæmt var af í 2-0 sigri Liverpool á Watford.

Nýliðar Sheffiled United halda áfram að slá í gegn en þeir höfðu betur gegn Aston Villa, 2-0.

Loksins kom sigur hjá Burnley, gengi liðsins hefur ekki verið gott undanfarnar vikur. Þeir unnu Newcastle 1-0.

Chelsea tapaði óvænt gegn Bournemouth á heimavelli og á sama tíma náði fallbaráttulið Norwich City í nokkuð óvænt stig gegn Leicester City sem situr í 2. sæti.

Southampton tapaði gegn West Ham í lokaleik dagsins, 0-1.

Mörkin og öll helstu atvikin úr fyrstu fimm leikjum dagsins má sjá hér að neðan, þau voru birt á vef Morgunblaðsins, mbl.is.









Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.