Fotbolti.net
15.01.10 - 16:19
Hafliði Breiðfjörð

Lára Hafliðadóttir í KR (Staðfest)

Sjötti leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið

Lára Hafliðadóttir er orðin leikmaður KR.

Lára Hafliðadóttir er orðin leikmaður KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
KR virðist ætla að styrkja leikmannahóp sinn verulega fyrir komandi leiktíð í kvennaboltanum því í gær varð Lára Hafliðadóttir sjötti leikmaðurinn til að ganga til liðs við félagið.

Frá þessu var greint á vef KR en Lára kemur til félagsins frá HK/Víkingi og gerir tveggja ára samning við KR.
Lára hefur skorað 34 mörk í 126 leikjum með HK/Víkingi og Breiðabliki í keppnum á vegum KSÍ, skorað sjö mörk í 17 leikjum á Reykjavíkurmótinu með HK/Víkingi og lék þrjá leiki í Evrópukeppni með Breiðabliki.

Hún hefur einnig leikið átta leiki með U19-landsliðinu og sex leiki með U17 landsliðinu.

Fyrr í vikunni hafði KR fengið Ellen Bjarnadóttur frá HK/Víking auk þess sem Rut systir hennnar hefur æft með félaginu.

KR hafði áður fengið Hörpu Þorsteinsdóttur frá Völsungi, Margréti Þórólfsdóttur frá Aftureldingu og Elísabetu Ester Sævarsdóttur frá Keflavík frá því tímabilinu lauk.

Þá ákvað Sonja Björk Jóhannsdóttir að ganga til liðs við félagið en hún var á láni frá Hetti hjá KR síðasta sumar.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.