15.01.10 - 19:18
Gunnar Gunnarsson
Jon Otsemobor til Southampton (Staðfest)

Jon Otsemobor (til vinstri) er genginn til liðs við Southampton.

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn, Jon Otsemobor er genginn í raðir Southampton á frjálsri sölu frá Norwich City. Þessi 26 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir sex mánaða samning við Southampton.
Otsemobor er fæddur í Liverpool og hlaut tilsögn í knattspyrnufræðunum í gegnum unglingastarfið á Anfield. Hann þreytti frumraun sína hjá Liverpool árið 2002 en náði einungis að byrja inn á í sex leikjum fyrir félagið.
Kappinn hefur komið víða við á ferli sínum. Hann hefur verið á láni hjá Hull, Bolton, Crewe og Rotherham áður en hann söðlaði um og gekk í raðir Norwich árið 2007, þar sem hann byrjaði inn á í 88 leikjum fyrir félagið.
Otsemobor spilaði einmitt gegn Southampton þegar Norwich kom í heimsókn í nóvember í fyrra en leikar fóru þá 2-2. Þess má geta að lokum að Otsemobor er þriðji leikmaðurinn sem gengið hefur í raðir Southampton nú í janúar en áður höfðu Jose Fonte og Dan Seaborne skrifað undir samning hjá félaginu.

Heimild: BBC Sport