15.01.10 - 15:02
Magnús Már Einarsson
Sol Campbell til Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sol Campbell hefur skrifað undir samning við Arsenal út þetta tímabil.
Þessi 35 ára gamli varnarmaður kemur frítt til félagsins eftir að hafa yfirgefið Notts County fyrr á tímabilinu.
Campbell hefur æft með Arsenal að undanförnu og hann lék 45 mínútur í varaliðsleik gegn West Ham fyrr í vikunni.
,,Hann kemur með reynslu og hann hefur lagt hart að sér til að komast í form. Við erum að gefa honum tækifæri,\" sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal í dag.
,,Þetta er góð hjálp fyrir okkur út tímabilið og fyrir hann er þetta gott tækifæri til að sýna að hann getur ennþá spilað í ensku úrvalsdeildinni.\"
Campbell er ekki í nógu góðu leikformi til að geta spilað gegn Bolton á sunnudag en Wenger segir að það geti tekið einhvern tíma fyrir hann að komast í nógu góða leikæfingu.

Heimild: BBC