Fotbolti.net
15.01.10 - 18:43
Magnús Már Einarsson

Egill Jóhannsson í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Egill Jóhannsson í Reyni Sandgerði (Staðfest)
Canon

Mynd: Jón Óskar Þórhallsson

Reynir Sandgerði hefur fengið miðjumanninn Egil Jóhannsson til liðs við sig frá ÍBV.
Þessi 21 árs gamli leikmaður steig sín fyrstu skref með meistaraflokki ÍBV árið 2005.

Síðastliðið sumar var hann í láni hjá KFS fyrri hluta tímabilsins en hann fór síðan aftur til ÍBV þar sem að hann lék þrjá leiki í Pepsi-deildinni.

,,Ég er bara mjög spenntur og líst mjög vel á þetta. Það er metnaður hjá þessu félagi og framtíðin er björt,\" sagði Egill við heimasíðu Reynis.

,,Mér finnst skemmtilegast að spila á miðjunni og stefnan er sett á að festa sig þar í sessi. Ég hef alltaf haft gaman af því að sækja en ég passa mig á að sinna minni varnarskyldu líka.\"

Egill er yngri bróðir Atla Jóhannssonar fyrrverandi leikmanns ÍBV og KR og núverandi leikmanns Stjörnunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.