Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 15. janúar 2022 10:30
Victor Pálsson
Telur að Neuer gæti spilað í sexunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Manuel Neuer gæti spilað sem útileikmaður hjá Bayern Munchen að sögn liðsfélaga hans Sven Ulreich sem lék sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Borussia Monchgengladbach á dögunum.

Ulreich þurfti að fylla skarð Neuer í markinu en sá síðarnefndi var í einangrun og því ekki leikfær.

Ulreich þurfti að sætta sig við tap í fyrsta leiknum en það var þó ekki hægt að kenna honum um mörk Gladbach sem vann leikinn 2-1.

Markmaðurinn er handviss um að Neuer gæti spjarað sem útileikmaður hjá Bayern en eins og flestir vita er hann einnig markvörður og einn sá besti í heiminum.

„Að mínu mati þá er Manuel besti markvörður heims þegar kemur að fótboltalegri getu og hann gæti spilað sem útileikmaður," sagði Ulreich.

„Hann er bæði með líkamlegu og fótboltalegu getuna í það. Því miður gerðist það ekki en þetta hefði verið áhugaverð uppstilling. Ég í markinu og hann í sexunni eða eitthvað."
Athugasemdir
banner
banner
banner