Fotbolti.net
15.02.20 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Liverpool heimsækir Norwich

England í dag - Liverpool heimsækir Norwich
Canon

Mynd: Getty Images

Það eru aðeins tveir leikir á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag er flestir leikmenn eru að snúa aftur úr vetrarfríinu langþráða,
Southampton tekur á móti Burnley í fyrri leik dagsins. Liðin eru jöfn á stigum um miðja deild og hefur gengið nokkuð vel að undanförnu.

Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með í leikmannahópi Burnley vegna meiðsla. Ben Gibson er einnig meiddur og er Ashley Barnes tæpur.

Síðar í dag á botnlið Norwich heimaleik við topplið Liverpool sem hefur aðeins tapað tveimur stigum allt deildartímabilið.

Liverpool er með ótrúlega 22 stiga forystu á meðan Norwich er sex stigum frá næsta liði í botnbaráttunni.

Xherdan Shaqiri er meiddur en Sadio Mane og James Milner gætu spilað eftir að hafa verið að glíma við meiðsli.

Leikir dagsins:
12:30 Southampton - Burnley (Síminn Sport)
17:30 Norwich - Liverpool (Síminn Sport)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.