15.04.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Einar Þór Daníelsson í ÍBV (STAÐFEST)




Eins og Fótbolti.net greindi fyrstur fjölmiðla frá í dag þá hefur Einar Þór Daníelsson. gert eins árs samning við ÍBV. Einar sem er 34 ára gamall var ekki búinn að ákveða hvort hann yrði áfram hjá KR og var talið líklegt að hann færi annað eða hætti í boltanum. Hann lék tólf leiki með KR í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar en ljóst er að hann kemur með gífurlega reynslu inn í lið ÍBV.
